148. löggjafarþing — 42. fundur,  21. mars 2018.

fjármálastefna 2018--2022.

2. mál
[16:12]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Helga Hrafni Gunnarssyni fyrir hans framlag. Ég ætla að leyfa mér að segja það, herra forseti, að ég tel að þessi lög um opinber fjármál marki ákveðin þáttaskil, ég er nú ekki sá fyrsti sem segi þetta, en þau gera það fyrir ýmissa hluta sakir. Eitt er það að meginhugmyndin í lögunum, eða a.m.k. ein af mikilvægustu hugmyndunum í lögunum, er að mjög þýðingarmikil stefnumörkun og auðvitað í stærsta máli hverrar ríkisstjórnar sem er ríkisfjármálin skuli reist á tilteknum grunngildum, eins og það heitir. Eitt af þessum grunngildum er náttúrlega gagnsæi sem hv. þingmaður gerði að umtalsefni. Það er víða vikið að því í umsögnum og margvíslegar góðar ábendingar um þetta atriði.

Síðan mætti auðvitað ræða það að það eru ýmis gildi sem mætti tilfæra sem hefðu kannski sömuleiðis átt erindi þarna inn. Eitt af þeim gildum sem til að mynda er ekki í upptalningunni er arðsemi. Þannig mætti áfram telja.

En varðandi gagnsæið þá gegnir það mjög veigamiklu hlutverki og það eru vonbrigði að þessi greinargerð sem lögin mæla fyrir um að skuli vera hluti af fjármálastefnu skuli ekki vera burðugri heldur en raun ber vitni og það hefði auðvitað verið gagnlegt að þar kæmi fram greining á því að hve miklu leyti fyrirliggjandi stefna er reist á (Forseti hringir.) gagnsæisgrunngildinu líkt og öðrum gildum.