fjármálastefna 2018--2022.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég veit að hv. þingmaður er í nefndinni og hefur tekið þátt í þessum samtölum og farið yfir umsagnir og því um líkt, ólíkt mér, ég er ekki í þessari nefnd og hef ekki sömu þekkingu á málsmeðferð þingsins. Ég velti fyrir mér: Er það tilfinning hv. þingmanns að þessi gagnsæisvinkill eigi eftir að batna eitthvað með tímanum? Ég velti þessu svolítið fyrir mér vegna þess að í greinargerð með málinu kemur fram að það eigi lögum samkvæmt, samkvæmt lögum um opinber fjármál, að fylgja þessu máli upplýsingar sem eru ekki lagðar fram. Það segir að það sé ekki mögulegt að birta upplýsingar um eignir og efnahag fyrir hið opinbera í heild vegna þess að það vanti lög um stofnefnahagsreikning, ef ég skildi þetta rétt.
Ég finn einhverja smá viðleitnina hérna til að veita einhverjar upplýsingar síðar, sitt sýnist hverjum um það hvort það dugi með hliðsjón af því að þetta eru lög sem vonir stóðu til að væru byltingarkennd í fjármálum hins opinbera. Þannig að ég spyr hv. þingmann, miðað við upplifun hans af meðferð þingsins: Eru líkur á því að gagnsæisvinkillinn eigi eftir að skána eða batna eitthvað mikið í framtíðinni miðað við málsmeðferðina sem átt hefur sér stað nú þegar?