148. löggjafarþing — 42. fundur,  21. mars 2018.

fjármálastefna 2018--2022.

2. mál
[16:16]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Við erum svolítið á þeim stað í þessari vinnu að því er ítrekað borið við að hlutirnir séu eins og þeir eru og svolítið áfátt í ýmsu tilliti, að menn séu enn þá að læra, en mér finnst þessi lærdómskúrfa ef ég má nota það orð, hún er svolítið flöt í mínum augum. Mér finnst þessi lærdómur ekkert ganga allt of hratt fyrir sig. Til að mynda það að við skulum vera hérna þremur árum eftir að lögin eru sett að ræða það að fyrirskipaða greinargerð, samkvæmt lögum, um þessi grunngildi er ekki að finna að neinu leyti sem myndi rísa undir nafni.

Ég vil nota þetta tækifæri líka til að vekja athygli á öðrum þáttum sem eru til að mynda þau fyrirmæli laga um opinber fjármál að líta skuli til langs tíma, langtímaþátta. Það er gert að umtalsefni í áliti fjármálaráðs að það eru mjög mikilvægar lýðfræðilegar breytingar hér í gangi eins og öldrun þjóðarinnar og annað, (Forseti hringir.) og það er minnt á það af hálfu fjármálaráðs að í 9. gr. laga um opinber fjármál er kveðið á um (Forseti hringir.) að þróun og horfur séu greindar (Forseti hringir.) til lengri tíma. Á þetta auðvitað skortir.