148. löggjafarþing — 42. fundur,  21. mars 2018.

fjármálastefna 2018--2022.

2. mál
[16:38]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna sem var skýr og fróðleg eins og endranær. Ég ætlaði að spyrja hv. þingmann út í það hvort það væri rétt skilið hjá mér að nefndin hefði ekki á nokkurn einasta hátt brugðist við ábendingu fjármálaráðs, en lokaorð hv. þingmanns voru alveg skýr í þeim efnum.

Það er hins vegar annað sem ég velti fyrir mér í sambandi við 10. gr. laga um opinber fjármál sem fjallar um það við hvaða skilyrði skuli leggja fram nýja fjármálastefnu. Það er ekki bara þegar menn skipta um skoðun, ekki beinlínis, heldur þarf eitthvað svakalegt að koma til. Við að hlýða á þann hluta orða hv. þingmanns fylltist ég pínulitlum ótta við að hér værum við að festa okkur rosalega mikið til fimm ára í eitthvað sem ekki væri hægt að breyta. Ég hugsaði með mér að í ljósi þess væri alveg agalegt að ekki sé brugðist á neinn hátt við ábendingum sem bárust nefndinni frá fjármálaráði og væntanlega öðrum. Svo hugsaði ég með mér: Þýðir það ekki einfaldlega að ekki verður farið eftir þessu?

Nú virðist það vera orðin lenska í sambandi við opinber fjármál að þau ætla greinilega ekki að bíta jafn fast og við vonuðum þegar við settum þessi lög. Ég var hér á þarsíðasta kjörtímabili þegar þessi lög voru sett. Því var mikið fagnað af langflestum vegna þess að vonin var sú að nú gætum við sett einhverjar reglur, nokkur viðmið, sem myndu standa, sem myndu gilda, og það væri einhver agi á þessu. En aginn er ekki meiri en svo að ríkisstjórnin virðist bara ætla að borða það af borðinu sem henni sýnist. Ef hún vill ekki jarðarberjasultu þá fær hún sér ekki jarðarberjastultu heldur eitthvað annað. Ég velti fyrir mér hvort hv. þingmaður hafi ekki líka þær áhyggjur, ekki af jarðarberjasultunni heldur frekar því að það verði ekkert farið eftir þessu, frekar það en að þetta læsi okkur inni.