fjármálastefna 2018--2022.
Virðulegi forseti. Ég er nú einn af þeim sem vonar innilega að ekki verði annað efnahagshrun í bráð, þótt ég telji reyndar að þau séu á ákveðinn hátt óhjákvæmileg í mannlegu samfélagi og mannlegum hagkerfum, því miður. Þetta svar, sem ég kann mjög að meta frá hv. þingmanni, hræðir mig samt enn meira. Það mun eitthvað gerast öðruvísi en það sem við áætlum, það er eðli þess að spá fyrir um framtíðina í fjármálum. Þá óttast ég að við lendum í þeim vanda að þurfa ýmist að skera niður eða hækka skatta. Nú sýnist frekar augljóst hvor hliðin muni vilja hvað í þeim efnum í þessari ríkisstjórn í það minnsta. Ég held samt sem áður að niðurstaðan verði hreinlega sú að ríkisstjórnin muni hunsa þetta.
Mig langar að vera sammála hv. þingmanni um að við verðum að gera ráð fyrir því að ríkisstjórnin ætli að fara eftir þessu, en að sama skapi finnst mér vera búið að draga svo mikið tennurnar úr þessum aga sem þessi lög áttu að tryggja, þess vegna hef ég líka áhyggjur. Ekki bera vegna þess að við getum ekki breytt stefnunni eftir á, alla vega ekki auðveldlega, heldur vegna þess að ég óttast (Forseti hringir.) að um verði að ræða áframhaldandi niðurrif á þeirri góðu hugsjón sem lög um opinber fjármál áttu að stuðla að.