148. löggjafarþing — 42. fundur,  21. mars 2018.

fjármálastefna 2018--2022.

2. mál
[16:44]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Þegar við fórum út í það að semja lögin um opinber fjármál vorum við í efnahagslægð, hrunið hafði skollið á. Við bjuggum yfir reynslunni af því hvernig slíkt fer með almenning í landinu, hvernig slíkt fer með velferðarþjónustuna í landinu. Þetta var allt í fersku minni. Við vorum að upplifa þetta á meðan við vorum að reyna að bæta lög um opinber fjármál í því augnamiði og með það markmið að leiðarljósi að reyna að koma í veg fyrir að við færum aftur í slíka dýfu. Lögin um opinber fjármál er einn af þeim lærdómum sem við þurftum að fara í gegnum eftir efnahagshrunið. Ég vona og ég leyfi mér að treysta því og trúa að hæstv. ríkisstjórn ætli að virða lögin og nota þau og nýta (Forseti hringir.) sér það sem í þeim er til þess að koma í veg fyrir að við siglum í strand eins og við gerðum haustið 2008.