148. löggjafarþing — 42. fundur,  21. mars 2018.

fjármálastefna 2018--2022.

2. mál
[16:45]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Oddnýju Harðardóttur ræðu hennar. Það er nú einu sinni þannig að þrátt fyrir fyrirmyndarháttvísi og fræðilega kurteisi í áliti fjármálaráðs þarf enginn að fara í grafgötur um að gagnrýni fjármálaráðs er býsna þung. Það leynir sér ekki. Þegar hv. þingmaður tekur til máls um þetta efni fer ekki hjá því að maður leggi við hlustir, enda talar hér fyrrverandi fjármálaráðherra.

Ég vil því spyrja hv. þingmann hvað hún hefði talið vera eðlilega og hentuga málsmeðferð í ljósi þeirrar gagnrýni sem ristir djúpt í áliti fjármálaráðs. Hún gagnrýnir meiri hlutann fyrir að taka í litlu sem engu mið af þeirri gagnrýni. Ég leyfi mér að viðurkenna að hún er ekki sú eina sem tók eftir því, það voru fleiri. Ég get ekki leynt því að það kom mér nokkuð á óvart að í ljósi þeirrar gagnrýni sem þarna kom fram og reyndar frá fleirum skyldi ekki verða brugðist við með öðrum hætti en gert var. (Forseti hringir.) Ég hef mikinn áhuga á að heyra hv. þingmann tjá sig um sínar hugmyndir um eðlileg viðbrögð í því efni.