fjármálastefna 2018--2022.
Herra forseti. Spurning mín var kannski ekki síður um málsmeðferð á þessu máli núna. Einhvern veginn hafði maður kannski leyft sér að ímynda sér að þessi þingsályktunartillaga um fjármálastefnu væri ekki að öllu leyti klöppuð í stein og það væri engin goðgá þótt hún væri lögð fram að teknu tilliti til meginsjónarmiða sem hefðu komið fram. Ég kannski var ekki síður að velta því fyrir mér í mínu innleggi.
En jafnvel þótt hv. þingmaður hafi átt sæti í ríkisstjórninni 2009–2013 þá verð ég að gera þá persónulegu játningu að mér var ekki mikil eftirsjá í þeirri ríkisstjórn, en ég hef (Forseti hringir.) eftir sem áður áhuga á sjónarmiðum þingmannsins um þá (Forseti hringir.) málsmeðferð sem hefði getað verið með öðrum hætti hér. Ég hefði getað ímyndað mér aðra málsmeðferð en hér hefur verið höfð uppi.