kosningar til sveitarstjórna.
Hæstv. forseti. Það mál sem hér er til umræðu er þess eðlis að það er ekki flokkspólitískt. Ég hygg að í mörgum flokkum séu mismunandi sjónarmið varðandi það. Sjálfur hef ég efasemdir um þetta mál, en verð þó að taka fram að auðvitað eru engin algild eða óhrekjanleg rök hvorki fyrir því að draga eigi mörkin við 16 ára aldur né 18 ára aldur. Má færa rök fyrir hvorri niðurstöðunni sem er.
Ég velti hins vegar fyrir mér einu atriði sem mér finnst óljóst og bið hv. þm. Kolbein Óttarsson Proppé að koma nánar inn á í svari við þessu andsvari, þ.e. hvernig hann sjái fyrir sér að með því að lækka kosningaaldurinn sé hægt að auka lýðræðisþátttöku ungs fólks. Auðvitað fjölgar í kjósendahópnum. En ef við horfum á hvern árgang fyrir sig er einhver ástæða til þess að ætla að lækkun kosningaaldursins sem slík hafi þau áhrif að almenn stjórnmálaþátttaka eða virkni ungs fólks í þessu sambandi verði meiri? Ég velti þessu fyrir mér vegna þess að mér finnst ekki alveg röklegt samhengi þar á milli.
Við höfum séð þá þróun á undanförnum árum að þátttaka í kosningum hefur heldur farið niður á við, þó meira reyndar í sveitarstjórnarkosningum en í þingkosningum, og minnsta kosningaþátttakan er í yngstu aldurshópunum. Mér finnst skorta svolítið á röklegt samhengi milli þess að færa aldurinn niður og þess að ætla að þátttakan sem slík muni með einhverjum hætti aukast.