kosningar til sveitarstjórna.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það er ágætt að velta þessu fyrir sér. Það vill svo til að við höfum bæði stefnuna þar sem gengið er út frá þessu og líka framkvæmdina þar sem við getum einfaldlega horft til reynslunnar. Þing Evrópuráðsins samþykkti árið 2011 þá ályktun að lækka ætti kosningaaldur í 16 ár, það myndi efla þátttöku ungmenna á vettvangi samfélagsins. Sú samþykkt kom ekki úr tóminu heldur er niðurstaða langrar og mikillar umræðu fræðimanna á þessu sviði, sem ég hvet hv. þingmann til að kynna sér. Ályktunin er nr. 1826 ef hann hyggst lesa sér betur til um þetta.
Þá höfum við einnig dæmi. Við höfum séð þetta í Skotlandi þar sem þjóðaratkvæðagreiðsla um sjálfstæði Skotlands var haldin árið 2014. Það var gríðarlega mikil þátttaka þar og ekki síst í þeim aldurshópi sem hefði ekki fengið að taka þátt í þjóðaratkvæðagreiðslunni nema vegna umræddrar breytingar, þ.e. 16 til 18 ára. Eins eru dæmi um þetta í Austurríki þar sem það skref var einfaldlega stigið að lækka kosningaaldur í 16 ár í öllum kosningum árið 2007. Við höfum þannig dæmi. Ég vísaði til þess í framsögu minni hér áðan að dæmi væru talin upp í sjálfu frumvarpinu og ég hvet hv. þingmann til að kynna sér það.
Raunin er yfirleitt sú að þú tekur ekki þátt í einhverju sem þú hefur ekki (Forseti hringir.) áhrif á. Til þess að það sé hvatning fyrir þig til að taka þátt í einhverju (Forseti hringir.) þarftu að fá að hafa áhrif. Þannig er þetta tengt fræðslunni.