kosningar til sveitarstjórna.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti 1. minni hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um kosningar til sveitarstjórna. 1. minni hluti styður frumvarpið efnislega en telur allt of stuttan tíma til stefnu fram að kosningum til sveitarstjórna 2018 til að breyting á kosningalögum yrði nægilega vönduð og nægilega vel að slíkri breytingu staðið. 1. minni hluti leggur því til breytingartillögu varðandi gildistíma frumvarpsins.
Að því sögðu ætla ég að fara yfir texta nefndarálitsins. 1. minni hluti tekur undir mjög margt í áliti meiri hlutans, þar er mjög margt ágætt sem styður þá skoðun að lækka eigi kosningaaldur til sveitarstjórna úr 18 árum í 16 ár.
Breytingar á kosningalögum er nauðsynlegt að undirbúa vel, sérstaklega þegar um er að ræða slíka grundvallarbreytingu eins og lækkun á kosningaaldri sem lögð er til í frumvarpinu. 1. minni hluti telur jákvætt að auka réttindi barna í samfélaginu stig af stigi. Fyrir nefndinni kom hins vegar fram að slíka breytingu þyrfti að undirbúa vel, m.a. þar sem kynning þyrfti að ná til nemenda í grunnskólum, framhaldsskólum og þeirra sem ekki stunda skóla þegar kosningar fara fram. 1. minni hluti telur mikilvægt að stuðla að lýðræðislegri þátttöku barna en telur nauðsynlegt að vandað sé til kynninga í tengslum við kosningar og að þær takist vel. 1. minni hluti telur að ekki sé nægur tími til að koma af stað vönduðu kynningarverkefni þegar einungis eru rúmir tveir mánuðir til kosninga.
Fyrir nefndinni komu fram sjónarmið hjá gestum og umsagnaraðilum um að betra væri að breytingin tæki gildi við þar næstu sveitarstjórnarkosningar þar sem þá myndi gefast nægur tími til undirbúnings. 1. minni hluti tekur undir það og telur að gera þurfi úttekt á námskrám og kennsluefni um lýðræði og stjórnmál til að meta hvort breytinga sé þörf. Fyrsta skrefið væri þá að meta og síðan gera breytingar ef á þyrfti að halda. Til þess þarf augljóslega lengri tíma en tvo mánuði. Þá sé mikilvægt að sett sé umgjörð um það hvernig og með hvaða hætti sé heimilt að beina upplýsingum frá stjórnmálaflokkum að hópnum sem er á aldrinum 16–18 ára, sérstaklega innan veggja skólanna. Þar þurfi að setja skýrar reglur til að þeim sem starfa á vettvangi skólanna, foreldrum og nemendum sé ljóst með hvaða hætti slík kynning á stjórnmálaflokkum fer fram.
Við umfjöllun nefndarinnar hefur komið fram að markviss fræðsla til nýrra kjósenda af hálfu stjórnvalda er mikilvæg, þrátt fyrir að lýðræðisþjálfun og fræðsla í skólum verði tryggð. Heppilegt getur verið að slík fræðsla sé samstarfsverkefni stjórnvalda og félagasamtaka, með verkefnum eins og #égkýs og krakkakosningum, en mikilvægt er að tryggja að fræðslan nái til allra nýrra kjósenda hverju sinni. Eftir sem áður verða þeir sem kjósa í fyrsta skipti til sveitarstjórna á aldrinum 16–19 ára og þeir sem kjósa í fyrsta skipti til Alþingis á aldrinum 18–21 árs, og því er töluverð áskorun að ná til alls þess hóps með sams konar kynningarverkefnum. Hugsanlega þyrfti að vinna að þessu á fleiri en einum vettvangi til að hvetja til lýðræðislegrar þátttöku.
Þá hefur Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, sem fylgist með framkvæmd kosninga hér á landi, almennt varað við því að ráðast í breytingar á kosningalöggjöf svo skömmu fyrir kosningar. 1. minni hluti tekur undir slík sjónarmið og telur rétt að breytingin taki ekki gildi fyrr en við þar næstu sveitarstjórnarkosningar.
Við umfjöllun nefndarinnar kom fram að nauðsynlegt væri að samhliða breytingum á kosningaaldri færu fram rannsóknir á kosningaþátttöku ungmenna og áhrifum breytingarinnar á lýðræðisþátttöku til lengri tíma litið. Rannsóknir eru einn af þeim þáttum sem mikilvægt er að tími gefist til að skipuleggja í aðdraganda jafn veigamikilla breytinga. Mikilvægt er að dómsmálaráðuneytið í samstarfi við Samtök íslenskra sveitarfélaga leiti leiða til að tryggja að til þess bær rannsóknarstofnun sinni verkefninu. Samhliða er æskilegt að auka rannsóknir á leiðum til að auka lýðræðislega þátttöku almennt. Vissulega gæti þetta verkefni fallið undir íslensku kosningarannsóknina, en mjög mikilvægt er að farið verði yfir það hvort bæta þarf við einhverjum þáttum eða gera einhverjar breytingar til að ná í nægilega góðar upplýsingar um áhrif breytinganna.
Fyrsti minni hluti tekur undir það sjónarmið, sem skýrt er í áliti meiri hluta, að kjörgengi ætti að fylgja lögræðisaldri og styður breytingartillögu meiri hlutans þar að lútandi.
Fyrsti minni hluti telur nauðsynlegt að dómsmálaráðuneytinu verði falið að yfirfara þá löggjöf sem tengist breytingunni og gera tillögu að frekari lagabreytingum ef á þarf að halda. Ekki komu fram fyrir nefndinni sjónarmið um að frekari lagabreytinga þyrfti en lagt hefur verið til, en mikilvægt er að tími gefist til að yfirfara það vandlega. Einnig er nauðsynlegt í framhaldinu að gera úttekt á námskrá og kennsluefni um lýðræði og stjórnmál. Einnig er nauðsynlegt að mennta- og menningarmálaráðuneytið hugi að fræðslu til kennara af þessu tilefni því að það er oft það sem vantar upp á þegar námskrá og námsefni er breytt.
Að öllu þessu sögðu leggur 1. minni hluti til að frumvarpið verði samþykkt með gildistöku 1. janúar 2019. Það er að sjálfsögðu hvatning mín til þingmanna að styðja við þessa breytingartillögu og eins að greiða fyrir því að frumvarpið hljóti skjóta afgreiðslu.
Hver sem niðurstaðan verður úr afgreiðslu þingsins tel ég að allar þær ábendingar sem koma fram í þessu nefndaráliti séu mjög mikilvægar við framhald vinnu við útfærslu kosningalöggjafar og kynninga og rannsókna á kosningahegðun.
Hvort sem verður af breytingu á kosningalöggjöfinni að ræða að þessu sinni eða ekki tel ég mjög mikilvægt að farið verði í ítarlega úttekt og skoðun á því hvernig hægt er hvetja til almennari lýðræðislegrar þátttöku en nú er, þegar kjörsókn, og sérstaklega í yngri aldurshópunum, hefur verið að fara niður á við. Ég stoppaði sérstaklega við punktinn í áliti meiri hlutans um vandaða kynningu til þeirra sem ekki hafa íslensku að móðurmáli en efast í raun um að það sé endilega þar sem þörfin liggur. Ég held að mikilvægara sé kannski að þegar innflytjandi fær kosningarrétt, hvort sem það er til sveitarstjórnarkosninga, til alþingiskosninga eða annarra kosninga, fái hann tilkynningu þar um með einhverjum hætti, sé einfaldlega látinn vita af því að nú sé hann kominn með kosningarrétt. Ég hef rekið mig á það í gegnum tíðina að fólk er oft í dálitlum vandræðum með að finna það út sjálft og hugsar kannski ekki út í þann möguleika. Kannski væri líka hægt að gera þetta öðruvísi en með bréfi beint til kjósenda, kannski með betri kynningu á því hvernig sá hópur er afmarkaður sem fær kosningarrétt eftir að hafa flutt til landsins. En ég held ekki að sá hópur sé endilega sá sem á í mestum vandræðum með að skilja íslensku því að það er fólkið sem er búið að vera hér í nokkur ár.
Þá fer þessari yfirferð að verða lokið. Ég vildi koma inn á eitt atriði til viðbótar sem varðar það að væntanlega þekkir enginn hópur þjónustu sveitarfélaga betur en akkúrat aldurshópurinn sem er að ljúka grunnskóla, þessi 16–18 ára hópur sem hefur notið þjónustu sveitarfélaganna í gegnum leikskólann og grunnskólann allt frá fæðingu.
Ég hvet hv. þingmenn til að afgreiða málið skjótt og vel og að sjálfsögðu að líta vel til þeirra sjónarmiða sem koma fram í nefndaráliti 1. minni hluta, en undir það ritar sú sem hér stendur, Líneik Anna Sævarsdóttir.