kosningar til sveitarstjórna.
Virðulegur forseti. Ég þakka framsöguna. Það er ánægjulegt að sjá að við hv. þingmaður deilum þeirri skoðun að það sé skref í rétta átt að lækka kosningaaldur þó að við séum ekki alveg á sömu síðu með hvenær það eigi að taka gildi, en það er bil sem ég vona að við getum brúað innan skamms.
Mig langar að spyrja út í eitt atriði í nefndaráliti þingmannsins sem er þessi vísun í almennar viðvaranir Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu varðandi það að ráðast í breytingar á kosningalöggjöf svo skömmu fyrir kosningar. Þetta eru atriði sem ég kannast við úr einni umsögn og því miður þótti mér þetta vera mjög snöggur blettur á annars ágætri umsögn Sambands sveitarfélaga vegna þess að þetta var ekki stutt neinum heimildum.
Ég tók mig til og las í gegnum þær skýrslur sem stofnunin hefur gert vegna alþingiskosninga hér á landi 2009, 2013, 2016 og 2017, þetta kemur ekki fram þar. Ég velti fyrir mér á hverju þetta byggi vegna þess að í þessum skýrslum er þvert á móti fjallað um þær breytingar sem voru gerðar á lögum um kosningar til Alþingis gjarnan mánuði fyrir kosningar. Það var gert á síðasta ári, það var gert 2016 og það var gert tveimur mánuðum fyrir kosningar 2009 athugasemdalaust. Það var farið yfir þessar breytingar í skýrslum ÖSE og ekki gerð athugasemd við það vegna þess að þær breytingar voru líka ívilnandi í þágu kjósenda, þær voru til þess að auðvelda fólki að taka þátt í lýðræðinu.
Það sama er uppi á teningnum með þá breytingu sem hér er byrjað að ræða um, að lækka kosningaaldurinn niður í 16 ár. Ég leyfi mér því að efast um að ÖSE myndi fetta fingur út í slíka breytingu. En umfram allt langar mig að heyra frá þingmanninum: Á hverju byggir þetta öðru en órökstuddri fullyrðingu í einni umsögn?