kosningar til sveitarstjórna.
Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum seinna andsvar. Ég er ekki sammála því sem fram kemur í áliti meiri hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar að ekkert hafi verið þessu til fyrirstöðu eða engar hindranir í veginum. Annan þeirra funda þar sem þetta mál var til umfjöllunar sat ég ekki og get því ekki fullyrt um allt sem þar kom fram. En það komu líka fram umsagnir þar sem hvatt var til þess að frumvarpið yrði samþykkt en ekki fyrr en að einu til tveimur árum liðnum. Þegar ég hlustaði á gesti rann það einmitt upp fyrir mér að ekki væri skynsamlegt að fara svona bratt í þetta. Þá var ég að hlusta á gesti sem þó styðja málið efnislega eins og ég geri.
Ég hef engar áhyggjur af Þjóðskrá eða því að ekki sé hægt að prenta kjörskrár eða hafa excel-skjöl tilbúin. Það sem ég hef áhyggjur af er virðing gagnvart þessum kjósendahópi, 16 til 18 ára, að hann fái vandaða kynningu, að vel sé staðið að umgjörðinni um það hvernig stjórnmálaflokkar beina til hans kynningum sínum, að tækifæri gefist til þess fyrir skóla og menntamálayfirvöld að bregðast við því sem er í raun lagt til og færð rök fyrir að þurfi að gera, að bæta lýðræðiskennslu og -fræðslu. Það er ein meginrökin hjá mér að við erum oft að henda einhverju á skólana, við ætlumst til að skólar hafi meira og minna allt sitt starf skipulagt ár fram í tímann, (Forseti hringir.) en svo eiga þeir að bregðast við einhverju sem okkur dettur í hug hér á Alþingi einn, tveir og þrír.