148. löggjafarþing — 42. fundur,  21. mars 2018.

kosningar til sveitarstjórna.

40. mál
[17:49]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta stjórnsk.- og eftirln. (Líneik Anna Sævarsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og fagna að sjálfsögðu öllum rökum sem styðja þetta álit. Ég get alveg tekið undir það að þau eru misgóð og kannski misgóð út frá því sjónarhorni sem við horfum á málið.

Varðandi fræðslurökin þá er ég fyrst og fremst að vitna til greinargerðar með frumvarpinu þar sem töluvert mikið er gert úr hlutverki skóla. Svo er það annað mál hvort skólar eiga yfirleitt að hafa sérstakt hlutverk í fræðslu fyrir kosningar. Skólum er ætlað að þjálfa börn og ungmenni í lýðræðislegri þátttöku sem er allt annað og er hluti af skólastarfinu. Þess vegna kem ég inn á það í áliti mínu að kannski sé heppilegra að sú fræðsla sem beinist sérstaklega að kosningum fari fram í gegnum sérstök verkefni eins og #égkýs.

Þá langar mig að beina boltanum aftur til hv. þingmanns. Ég var að velta því fyrir mér hvernig ætti að vekja athygli innflytjenda á því þegar þeir eru komnir á kjörskrá. Og af því ég veit að hv. þingmaður hefur sinnt ýmsum málefnum sem varða innflytjendur áhuga þá vil ég spyrja hann hvort hann hafi velt því fyrir sér hvort við ættum sérstaklega að huga að því varðandi lýðræðislega þátttöku almennt.