kosningar til sveitarstjórna.
Hæstv. forseti. Ég vil fyrst af öllu segja að umfjöllun í hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd um þetta mál hefur að mínu mati verið til mikillar fyrirmyndar og í störfum nefndarinnar hafa kristallast margt það besta sem við höfum upplifað hérna á þinginu, þ.e. að við tökum fyrir mál sem við erum ekki sammála um, við brjótum það til mergjar og við berum virðingu fyrir skoðunum hver annars og berum virðingu fyrir því að við erum ósammála og komumst væntanlega og vonandi að bestu niðurstöðu sem fær er í málinu. Það leiðir mig að því að ég ætla að kynna nefndarálit 2. minni hluta um þetta ágæta mál.
Þannig er að í starfi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um þetta mál í þessari vegferð kom til fundar við nefndina mikið af fólki, ungu fólki sem hafði sterkar skoðanir eins og ungt fólk hefur yfirleitt. Ég er ekki þeirrar skoðunar að ungt fólk hafi minni áhuga á stjórnmálum eða þátttöku í stjórnmálum nú en að undanförnu. Þvert á móti finnst mér einmitt að yngsta kynslóðin núna hafi miklu meiri áhuga og hafi kynnt sér mál miklu betur en kannski kynslóðirnar tvær þar á undan.
Hitt er svo annað mál að við sem erum starfandi í stjórnmálum getum ekki leitað að ástæðum fyrir áhuga á stjórnmálum og stjórnmálaþátttöku neins staðar annars staðar en hjá okkur sjálfum vegna þess að það er okkar starf í sjálfu sér og okkar hlutverk, náttúrlega fyrir utan það að reyna að gera þjóðfélaginu gagn, að gera þetta starf aðlaðandi, að sýna fólki fram á að það að taka þátt í stjórnmálum, ég tala nú ekki um að gera þau að atvinnu, er ekki eins og vaða mykju í hné alla daga, án þess að gera lítið úr því. Það er ekki þannig. Við þurfum einfaldlega að sýna fólki og sérstaklega ungu fólki fram á að það sé eftirsóknarvert að taka þátt í pólitísku starfi og ekki bara eftirsóknarvert, það sé til þess fallið að fólk geti haft áhrif. Það er það sem við þurfum að koma rækilega á framfæri við ungt fólk á hverjum tíma.
Það loðir við okkur Íslendinga að taka stórar ákvarðanir með skömmum fyrirvara. Þetta mál er dæmi um það. Hér erum við að gera stóra breytingu á fyrirkomulagi kosninga til sveitarstjórna og við ætlum að lögfesta þetta 60 dögum fyrir næstu kosningar. Ég verð að taka undir með umboðsmanni barna sem kom á fund nefndarinnar ásamt mörgum öðrum, en hún sagði að það væri hennar skoðun að það væri affærasælla að gefa þessu máli það svigrúm að gildistakan yrði þannig að við þar næstu sveitarstjórnarkosningar tæki þessi breyting gildi.
Þess vegna leggur 2. minni hluti til að gildistöku frumvarpsins verði frestað til ársins 2020. Sú dagsetning er ekki bara gripin úr loftinu eða út í bláinn. 2. minni hluti lítur þannig á að það þurfi tíma til þess að skipuleggja hvernig fræðslu verður komið á framfæri við það unga fólk sem við viljum síðan að hópist á kjörstað í næstu kosningum, eða í þessu tilfelli þar næstu kosningum. Ekki bara það, heldur telur 2. minni hluti að skólayfirvöld þurfi líka sinn tíma til þess að skipuleggja og leggja reglur um það hvernig pólitískir fulltrúar geti nálgast sína umbjóðendur sem eru t.d. í framhaldsskólum, skiljanlega.
Það kom reyndar fram hjá einum hópi ungs fólks sem heimsótti nefndina að þau kvörtuðu yfir því að þau fengju litla kynningu á pólitík yfir höfuð, en á sama tíma var þeim ekkert um það að pólitíkusar mættu í skólana. Þetta er svolítið vandratað.
Þá segi ég aftur: Til þess að koma á framfæri, við getum kallað það hvað sem er, boðskap, áróðri, ég vil segja hvatningu fyrst og fremst, að koma á framfæri hvatningu við ungt fólk um að taka þátt í pólitík, þá þurfum við einfaldlega að fá til þess vettvang sem allir eru sáttir við, þ.e. nemendurnir sjálfir eða unga fólkið, kennarar, skólayfirvöld og fjölskyldur þessara ungmenna.
Ég hef reyndar allt of sjaldan sjálfur fengið tækifæri til þess að fara í skóla til þess að tala um stjórnmál við ungt fólk, en í þau skipti sem það hefur gerst er það með því ánægjulegra sem ég hef gert í þessu starfi vegna þess að þetta unga fólk er svo vel meðvitað um hvað er að gerast. Sem betur fer hefur maður fengið hvassar og áleitnar spurningar vegna þess að þessu unga fólki er ekki sama, því er ekki sama um nærumhverfi sitt og því er ekki sama um þjóðfélagið sem það býr í. Það er akkúrat það sem við viljum.
Það er svo aftur á móti annar handleggur og kannski númer tvö að þeir stjórnmálamenn sem mæta á vettvang t.d. í skólana til þess að tala við ungt fólk ættu að stilla sig um flokkspólitíska ítroðslu og fara frekar yfir pólitíkina sem viðfangsefni, um hug manna til samfélagsins sem þeir búa í. Það tel ég að sé grundvöllurinn að því að við fáum aukinn áhuga sem kannski skilar sér í betri kosningaþátttöku. En þetta verður ekki gert á 60 dögum. Ég hef enga samúð með Hagstofunni, svo það sé sagt, ég veit að þar færa menn bara eina stiku til og ýta á enter og málið er leyst. Ég hef heldur líka litla samúð með kjörstjórnum þannig lagað þó að þeirra vinna yrði sjálfsagt meiri og ærnari ef það yrði ákveðið að gera þetta núna með 60 daga fyrirvara. En hugur minn í þessu máli er hjá, eigum við að segja fórnarlömbunum? Það er nú ofmælt, en hugur minn er hjá því unga fólki sem við viljum nálgast og viljum að taki þátt í kosningum og pólitísku starfi. Mér finnst það frekar hraðsoðið að ætla sér að gera það á 60 dögum. Flutningsmaður meiri hlutans í sinni ágætu ræðu sem hann flutti áðan, sagði: Við skulum gera þetta fljótt og við skulum gera þetta vel. En við gerum þetta ekki vel með því að hafa 60 daga til stefnu til þess að kynna ungu fólki eitthvað sem nægilegt gæti verið til þess að hvetja það til þess að koma á kjörstað og nýta sinn atkvæðisrétt. Mér finnst það ekki kurteislegt.
Við verðum líka að gera okkur grein fyrir því að það er í sjálfu sér alveg sama hvenær við hefjum þessa vegferð, af því að fyrsta kastið erum við náttúrlega ekki bara að tala við fólk ofan í 16 ára aldur, við erum að tala við þann hóp sem hafði ekki kosningarrétt í síðustu kosningum og hann er miklu stærri en þessi aldurshópur, sem sagt það fólk sem var ekki orðið fullra 18 ára við síðustu kosningar sem haldnar voru.
Ég held einfaldlega að þegar við erum að byrja einhverja svona vegferð þá þurfum við að vanda okkur, taka okkur þann tíma sem þarf, vegna þess að ég óttast það að ef við köstum til höndunum eins og með því að fara af stað 60 dögum fyrir kosningar, verandi búin að lækka kosningaaldur um tvö ár, og ætla þessum ágætu unglingum aðeins 60 daga til þess að móta sér afstöðu og mæta á kjörstað, mér finnst það ekki sanngjarnt satt að segja. Mér finnst ekki mikil virðing í því fólgin af okkar hálfu, löggjafans, fyrir þessu unga fólki.
Nú segi ég aftur: Það unga fólk sem ég hef hitt á þessum leiðangri mínum í stjórnmálum hefur verið upp til hópa mjög áhugasamt og vel að sér og miklu betur að sér en við sem erum orðnir gamlir og feysknir höldum kannski. Að því leyti til finnst mér að við eigum að sýna þessu unga fólki þá virðingu að það fái almennilegan tíma og almennilega fræðslu og almennilega kynningu á því um hvað stjórnmál snúast í stóru myndinni.
Að þessu sögðu þá tel ég líka að skólayfirvöld eins og ég sagði áðan þurfi sinn tíma til þess að undirbúa sinn þátt í því að kynna stjórnmál fyrir ungu fólki. Oft á tíðum hefur maður það á tilfinningunni, kannski með röngu, ég veit það ekki, að kynning á þjóðfélagsmálum í skólum sé kannski meira undir einstökum kennurum komin, þeirra áhuga og hvað þeir eru upptendraðir heldur en endilega það að skólayfirvöld út af fyrir sig hafi markað einhverja skýra stefnu fyrir þetta fólk til að vinna eftir. Auðvitað dáist maður að því fólki sem fer þannig fram í sínu starfi að það fer fram af eldmóði og áhuga fyrir því sem það er að gera.
Að þessu sögðu vil ég enn þá einu sinni ánýja það að þessi 60 daga tími sé of stuttur. Því leggur 2. minni hluti til að frumvarpið sem fyrir liggur verði samþykkt með þeirri breytingu að, eins og segir í nefndarálitinu, 2. gr. orðist svo: „Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2020.“
Eftir alla góðu umræðuna í nefndinni þar sem menn greinir á, jafnvel innan flokka, þá tölum við okkur saman um niðurstöðu og 2. minni hluti heldur því fram í mikilli hógværð að skynsamlegasta niðurstaðan sé sú sem birtist í nefndaráliti hans við þessa umræðu og hvetur þingmenn til þess að taka undir það.