kosningar til sveitarstjórna.
Frú forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti 3. minni hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um frumvarp til laga um breytingar á lögum um kosningar til sveitarstjórna. Þetta er þskj. 570, þannig að allir séu með á nótunum.
Kosningarréttur er auðvitað órjúfanlegur hluti af lýðræðinu og þess vegna teljum við félagarnir í 3. minni hluta, hv. þm. Brynjar Níelsson og sá er hér stendur, að allar breytingar á kosningalögum verði að undirbúa af kostgæfni og með góðum fyrirvara. Vegna þessa styður 3. minni hluti ekki fyrirliggjandi frumvarp, en það kemur auðvitað fleira til. Það eru ástæður fyrir því að við föllumst heldur ekki á þær breytingartillögur sem 1. minni hluti annars vegar og 2. minni hluti leggja til, jafnvel þótt farið væri milliveginn þar og miðað við að lögin myndu öðlast gildi 1. júlí 2019, sem er munurinn á breytingartillögum 1. og 2. minni hluta ef ég skil hlutina rétt, annars vegar 1. janúar 2020 og hins vegar 1. janúar 2019. Að öðru leyti eru 1. og 2. minni hluti efnislega sammála.
Að þessu sögðu eru mörg rök sem hníga að því að við tökum ákvörðun um að lækka kosningaaldur niður í 16 ár. En það er sérkennilegt að við skulum þá ekki stíga skrefið til fulls og samræmum kosningaaldur við allar kosningar, þ.e. að það sé samræmt að menn öðlist kosningarrétt til sveitarstjórna, til alþingiskosninga, til forsetakosninga og í almennum þjóðaratkvæðagreiðslum þegar 16 ára aldri er náð. Við í 3. minni hluta teljum þetta vera mikilvægt.
Þess vegna leggjum við til að skipuð verði nefnd, og Alþingi hafi forgöngu um það undir forystu hæstv. forseta, til þess að undirbúa nýja löggjöf, eina samstæða löggjöf er gildi um allar kosningar, sveitarstjórnarkosningar, forsetakosningar, alþingiskosningar og þjóðaratkvæðagreiðslur, samræmd lög þar sem m.a. er stigið það skref að lækka kosningaaldurinn niður í 16 ár, en það þarf að gera fleira.
Við þurfum líka að taka ákvörðun um það eðli málsins samkvæmt að lækka sjálfræðisaldur niður í 16 ár. Í rauninni held ég að það sé skynsamlegt og það séu fleiri rök með en á móti því að við miðum við það að öll borgaraleg réttindi miðist við 16 ár. Það sé það sem við eigum að vera að stefna að. Við eigum að hafa kjark og þor til þess að ræða málin á þeim nótum. Það gerum við ekki í tímapressu. Það gerum við ekki þegar nokkrar vikur eru í kosningar. Við gerum það af yfirvegun og ég er sannfærður um að markmiðið sé rétt og skynsamlegt, að öll borgaraleg réttindi, kosningarréttur, sjálfræði, fjárræði o.s.frv., miðist við 16 ár.
Það skiptir líka máli í mínum huga að þegar við gerum breytingar, þó ekki sé verið nema að lækka kosningaaldur til sveitarstjórna en ekki kjörgengis — sem ég gleymdi nú að tala um áðan, vegna þess að maður hlýtur að öðlast kjörgengi um leið og maður fær kosningarréttinn sem er ekki gert ráð fyrir í þessu frumvarpi og það þarf auðvitað að fylgja með — þá eru mörg atriði mikilvæg, en ég held að það sé mikilvægt að við vöndum undirbúninginn, að við séum alveg klár á því að við séum að gera réttu hlutina og það sé allt vel undirbúið, að það fari ekkert úrskeiðis í kosningunum vegna þeirra breytinga sem við erum að gera sem við erum öll sammála um. Flestir hérna virðast a.m.k. sammála um að það sé skynsamlegast að stefna að lækkun kosningaaldurs. Ég vonast til þess að við náum víðtækri samstöðu um breytingar á kosningalögum á næstu mánuðum og um eina heildstæða löggjöf. Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt að samstaða náist.
Síðan er auðvitað rétt að hlusta á þær viðvaranir sem hafa komið fram eða koma fram m.a. í umsögnum sem bárust til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Ég vek athygli á t.d. umsögn bæjarráðs Hveragerðis þar sem það hvetur Alþingi að íhuga vel málið áður en frumvarpið nær fram að ganga.
Það er líka vert að vekja sérstaka athygli á umsögn umboðsmanns barna sem ég ætla að fá að vitna til, með leyfi forseta, en þar segir m.a.:
„Frá 16 til 18 ára aldri eru einstaklingar börn og því í forsjá foreldra eða annarra forsjáraðila. Mikilvægt er að löggjafinn meti hvort að forsjáraðili geti með einhverjum hætti haft áhrif á kosningarrétt barna við núverandi aðstæður, til dæmis um aðgengi að upplýsingum fyrir kosningar. Má í þessu sambandi nefna sendingu markpósta, aðgang stjórnmálaflokka að skólum eða nemendafélögum, til dæmis grunnskólum, en lækkun kosningaaldurs mun hafa í för með sér að hluti 10. bekkinga öðlast kosningarrétt. Mikilvægt er að tryggt sé að foreldrar geti ekki með einhverjum hætti haft áhrif á kosningarrétt barna verði kosningarréttur lækkaður.“
Það segir sig sjálft að hinn heilagi réttur, kosningarréttur, verður auðvitað að fara saman við að maður sé sjálfráða. Ég skil markmið frumvarpsins, en ég skil ekki af hverju flutningsmenn frumvarpsins töldu ekki nauðsynlegt a.m.k. lækka sjálfræðisaldurinn líka og að kjörgengi væri einnig hið sama.
Svo er vert að vekja líka athygli á umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga sem tónar aðeins saman við það sem ég sagði áðan, þar sem bent er á að það hafi verið afstaða sambandsins að löggjöf um kosningar til Alþingis og sveitarstjórna eigi að vera eins samræmd og kostur er, en við erum ekki að gera það. Við erum fremur að slíta hana í sundur. Af þessari ástæðu, þótt ekki væri nema bara þessari ástæðu, er Samband íslenskra sveitarfélaga efins um ágæti þess að gera þær breytingar sem við ræðum um hér.
Þegar Samband íslenskra sveitarfélaga varar við að gera þetta með þessum hætti þegar eingöngu er verið að tala um breytingar á lögum um sveitarstjórnarkosningar þá held ég að þingheimur ætti að hlusta. Ég held að þingheimur ætti að hlusta á umboðsmann barna. Ég held að þingheimur ætti líka að hlusta á hin ýmsu bæjarráð og sveitarfélög sem hafa sent inn umsagnir. Það breytir auðvitað ekki skoðun minni og líklegast fleiri hér að það sé skynsamlegt að gera breytingar í þá átt, en við þurfum að samræma hlutina, við þurfum að hafa heildstæða löggjöf um allar kosningar. Ég held að við eigum að ná samkomulagi um endurskoðun kosningalöggjafar eða réttara sagt að ná saman um það að setja eina heildstæða kosningalöggjöf og þá tökum við m.a. kosningarréttinn og gerum síðan aðrar nauðsynlegar lagabreytingar.
Ég ætla að benda á að samkvæmt mínum upplýsingum var sjálfræðisaldur hér á Íslandi allt frá Grágás og fram til þess að sjálfræðisaldurinn var hækkaður í 18 ár 1997 eða um það bil, ef ég man rétt, 16 ár. Þannig að við skulum bara fara aftur til Grágásar og miða kosningarréttinn, sjálfræðisaldurinn, öll borgararéttindi við Grágás.