kosningar til sveitarstjórna.
Virðulegi forseti. Ég þakka framsögumanni 3. minni hluta fyrir hans umfjöllun um málið. Ég get að mörgu leyti verið sammála því að það væri ástæða til að fara í heildarendurskoðun á löggjöfinni en ég átta mig ekki á því af hverju þyrfti að breyta öllum borgaralegum réttindum samhliða því að breyta kosningarrétti. Værum við þá ekki komin t.d. í andstöðu við barnasáttmálann sem gerir ráð fyrir því að börn séu börn til 18 ára aldurs? Það er viðmið barnasáttmálans. Hins vegar er það á sama hátt í anda barnasáttmálans að veita börnum réttindi smátt og smátt, stig af stigi.
Þriðji minni hluti telur mikilvægt að það sé heildarsamræmi í kosningalöggjöfinni. Eins og er er ýmislegt sem ekki er eins, t.d. varðandi kosningarrétt innflytjenda við sveitarstjórnarkosningar og alþingiskosningar. Er það þá eitt af því sem ætti að samræma milli allra kosninga og á hvaða hátt? Er eitthvað fleira sem þingmaðurinn hefur í huga varðandi heildarendurskoðun?