kosningar til sveitarstjórna.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Óla Birni Kárasyni svarið og er í sjálfu sér mjög ánægð með að við erum sammála um að það þarf að vanda til verka þegar farið er í breytingar á kosningalöggjöf. Það getur vel verið að það þurfi að taka fleira til skoðunar en í rauninni er tími til samhliða þessum breytingum. Eins og kemur fram í mínu nefndaráliti, áliti 1. minni hluta, er bent á að dómsmálaráðuneytið þyrfti að yfirfara hvort einhvers staðar væru hnökrar samhliða breytingu eins og þeirri sem hér er lögð til.
Varðandi aðra spurningu velti ég bara fyrir mér hvort það eru fleiri atriði óskyld þessari breytingu sem (Forseti hringir.) hafa komið upp í huga þingmannsins varðandi breytingar á kosningalöggjöf.