148. löggjafarþing — 42. fundur,  21. mars 2018.

kosningar til sveitarstjórna.

40. mál
[18:37]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Já, ég get alveg tekið undir það að vanda þarf til verka því að við viljum ekki lenda í vandræðum ef þessar breytingar verða teknar fyrir núna. Mig langar til gamans að geta þess — af því að hv. þingmaður minntist á Grágás og að þá hefði 16 ára aldur verið sjálfræðisaldur — að ef við færum að breyta lögunum aftur til þess tíma myndu konur sennilega missa kosningarrétt. Ekki viljum við það. (Gripið fram í: Sjálfræðisaldur.) — Já, sjálfræðisaldur. En ef við færðum lögin aftur óbreytt í átt að Grágás, eins og þau voru þá, væru konur ekki með kosningarrétt.

Við þurfum að stíga varlega til jarðar hvað þetta varðar.