148. löggjafarþing — 42. fundur,  21. mars 2018.

kosningar til sveitarstjórna.

40. mál
[18:58]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta stjórnsk.- og eftirln. (Líneik Anna Sævarsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla að byrja á að óska eftir því að málið gangi til nefndar á milli umræðna. Mér hafa borist beiðnir um að koma að frekari upplýsingum um málið frá umsagnaraðilum.

Síðan vil ég þakka hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur fyrir ágæta yfirferð en mig langar að spyrja hvort henni sé kunnugt um að lýðræði og mannréttindi eru einn af grunnþáttum menntunar samkvæmt námskrá og hvað hún telji að eigi að felast í því.