148. löggjafarþing — 42. fundur,  21. mars 2018.

kosningar til sveitarstjórna.

40. mál
[18:59]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Lýðræði og mannréttindi einn af grunnþáttunum — þar er ég hjartanlega sammála. Varðandi það hvort þetta sé brúkað í skólum landsins held ég það, já. Ég held að mannréttindi séu virt og að það sé reynt að efla lýðræðislega vitund. Ég held að svo sé samkvæmt námskrá grunnskóla. Það er einmitt það sem ég var að benda á, þ.e. að börn og ungmenni fá að því er ég tel jafnvel meiri fræðslu hvað varðar lýðræði og mannréttindi fram að lokum grunnskóla en í framhaldsskólunum. Ég er ekki að kasta rýrð á það sem gerist í framhaldsskólunum, ég held að þetta sé bara samræmdara í grunnskólunum af því að ég tel að framhaldsskólarnir séu mjög misjafnir. Þar er ólíkara kerfi, það er ólíkara hvort nemandi sækir þá tíma sem efla lýðræðisvitund og þá hugsun sem það varðar.