148. löggjafarþing — 42. fundur,  21. mars 2018.

kosningar til sveitarstjórna.

40. mál
[19:01]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta stjórnsk.- og eftirln. (Líneik Anna Sævarsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka svarið. Mér finnst mjög mikilvægt að það komi fram við þessa umræðu að lýðræði og mannréttindi eru einn af sex grunnþáttum menntunar samkvæmt námskrá. Hinir eru læsi, sjálfbærni, heilbrigði og velferð, jafnrétti og sköpun. Þetta þýðir að þessir þættir eiga að fléttast inn í allt skólastarf og þeir gera það eftir því sem ég best veit í leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólum. Þetta gerist með misjöfnum hætti og misjafnlega eftir aðstæðum og þess vegna velti ég fyrir mér hvort t.d. það að velja fulltrúa í ungmennaráð, það að velja stjórnir nemendafélaga, halda bekkjarfundi, velja stjórn leikfélags og halda fundi í nemendafélögum geti verið hluti af slíkri fræðslu.