148. löggjafarþing — 42. fundur,  21. mars 2018.

kosningar til sveitarstjórna.

40. mál
[19:02]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir spurninguna. Ég held einmitt að allt þetta, öll þessi þjálfun, að taka þátt í að velja fulltrúa í nemendafélag og taka þátt í ýmsum félagsstörfum, efli lýðræðislega hugsun. Það er einmitt þess vegna sem ég er fylgjandi því að við 16 ára aldur ungmennis, þegar það hefur í allan þennan tíma fengið að greiða atkvæði í nemendafélaginu, fengið að taka þátt í félagsstörfum, fengið að spreyta sig á ýmsum sviðum inni í skólakerfinu, einmitt þess vegna, hv. þingmaður, treysti ég 16 ára ungmennum fyllilega til að taka upplýsta ákvörðun inni í kjörklefa í sveitarstjórnarkosningum. Þess vegna er ég svo fylgjandi þessu.

Fræðslan umfram það sem gerist inni í skólunum er lítil sem engin nema þau sæki sér það sjálf inni á vefnum kosningar.is. Þegar ég áttaði mig á því að umframfræðslan er lítil sem engin áttaði ég mig á því að það er ekki fyrirstaða gegn því að koma þessu áfram, að leyfa lækkunina á kosningaaldrinum, af því að hagsmunaaðilar sem gæta hagsmuna barna sem vinna í þágu barna sem komu fyrir nefndina og skiluðu áliti voru sammála um að þetta væri í þágu þeirra hagsmuna. Ég held að okkur á Alþingi beri skylda til þess einmitt eins og er í barnalögum og barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að hugsa fyrst og fremst út frá hagsmunum barna, ekki út frá hagsmunum stjórnmálaflokka eða miðaldra þingmanna.