móttaka barna á flótta.
Herra forseti. Það var sannarlega gaman að sjá hvað Þjóðverjar tóku vel á móti hæstv. forsætisráðherra og ekki síður hvað geislaði af þessum öflugu þjóðhöfðingjum. Þjóðverjar hafa sýnt mikla ábyrgð í málefnum flóttafólks, en því miður bárust heldur ömurlegar fréttir af gestrisni okkar Íslendinga gagnvart börnum í slæmum aðstæðum á meðan heimsókninni stóð.
Í fyrrahaust náðist samstaða allra flokka nema Sjálfstæðisflokksins um breytingar á lögum til að vernda börn á flótta. Í greinargerð með frumvarpinu var áréttaður vilji löggjafans um að ávallt skuli taka til efnislegrar meðferðar umsóknir um alþjóðlega vernd ef umsækjandi er í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Þá einsettu sömu flokkar sér að hefja strax endurskoðun á útlendingalögunum til að tryggja rétt barna og virða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Fjórum mánuðum eftir að ríkisstjórnin tók við er sú vinna ekki hafin. Og það sem er enn verra, þrengt hefur verið að réttindum barna í þessari ömurlegu stöðu. Nú virðist hæstv. dómsmálaráðherra hafa hunsað vilja löggjafans fullkomlega með nýrri reglugerð. Veik börn sem áður hefðu átt möguleika á skjóli og öryggi verða nú send úr landi.
Þetta gerist í tíð núverandi ríkisstjórnar og að því er virðist sama dag og hæstv. dómsmálaráðherra er varin vantrausti fyrir embættisafglöp af flestum stjórnarliðum.
Því hlýt ég að spyrja hæstv. ráðherra: Vissi hún af þessari reglugerð þegar vantraust á dómsmálaráðherra var borið upp? Hvað finnst henni um þessa reglugerð?
Þetta er óforskammað, ómannúðlegt, kaldrifjað og hlýtur að vera ísköld vatnsgusa beint framan í Vinstri græn sem talað hafa fyrir meiri mannúð í þessum málaflokki. Nú reynir virkilega á hvort málflutningur þeirra eru bara orðin tóm.
Ég spyr því hæstv. forsætisráðherra: Mun hún tafarlaust rísa upp og andmæla framferði hæstv. dómsmálaráðherra?