148. löggjafarþing — 43. fundur,  22. mars 2018.

móttaka barna á flótta.

[10:36]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni hlý orð í minn garð og fyrirspurn um mjög mikilvægt málefni. Af því að hv. þingmaður spyr hvort mér hafi verið kunnugt um efni þeirrar reglugerðar sem hann vísar til í fyrirspurninni, þá var mér það ekki. En vissulega var sú reglugerð sett í opið samráðsferli en það hafði farið fram hjá mér að fylgjast með efni þeirrar reglugerðar.

Ég hef síðan í kjölfarið sett mig inn í þá gagnrýni sem Rauði krossinn hefur sett fram á efni reglugerðarinnar, þar sem Rauði krossinn telur of langt gengið í því að þrengja að þeim sem hingað koma á flótta. Af því að hv. þingmaður spyr sérstaklega um viðbrögð mín, þá hef ég óskað eftir samtali milli forsætisráðuneytis og dómsmálaráðuneytis til að fara nákvæmlega yfir gagnrýni Rauða krossins og fara yfir þetta mál þar heildstætt út frá þeirri gagnrýni og hvernig sé rétt að bregðast við því. Ég vil ítreka að í kjarna útlendingalaganna sem hér voru samþykkt á sínum tíma er sérstaklega rætt um það að mannúð eigi að vera okkar leiðarljós í móttöku flóttafólks og ekki síst barna. Þess vegna er mikilvægt að við tökum þá gagnrýni sem birst hefur alvarlega og við förum yfir hana á vettvangi ríkisstjórnarinnar.

Hv. þingmaður spyr líka eftir þeirri þverpólitísku vinnu sem var boðuð í stjórnarsáttmála, ekki bara um endurskoðun á útlendingalögum heldur líka um framkvæmd útlendingalaga. Ég hef spurt sérstaklega eftir þessu og hef fengið þau svör að enn vanti tilnefningar frá tveimur stjórnmálaflokkum á Alþingi í þá nefnd. Ég hef því óskað eftir að ýtt verði á eftir þeim tilnefningum þannig að sú vinna geti hafist sem fyrst því að ég hef lagt á það áherslu, eins og hv. þingmaður líka, að um þetta mál skapist sem mest þverpólitísk samstaða. Það skiptir verulegu máli fyrir málaflokk á borð við þennan.