148. löggjafarþing — 43. fundur,  22. mars 2018.

móttaka barna á flótta.

[10:37]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Það liggur reyndar fyrir að ekki mun nást algerlega þverpólitísk samstaða um þetta mál. Það kom fram í afstöðu Sjálfstæðisflokksins síðasta haust. En þá þurfum við hin, sem höfum virkilega meiri hluta fyrir þessu, að knýja fram okkar vilja.

Ég spyr: Hvað hefur breyst núna ef hæstv. ráðherra er farin að hlusta á Rauða krossinn? Vegna þess að afstaða Rauða krossins lá fyrir löngu áður en reglugerðin var undirrituð.

Mig langar þá líka að spyrja hæstv. ráðherra fyrst hún segist ætla að ýta á eftir vinnu þessarar þverpólitísku nefndar: Hefur hún ekki áhyggjur af því að hæstv. dómsmálaráðherra muni svo ekki bara hunsa niðurstöðu þverpólitísku nefndarinnar og gefa út reglugerðir út og suður? Og þá í ljósi þess: Finnst hæstv. ráðherra það ekki koma til greina að endurskoða hvort valdaframsal þings til ráðherra sé í sumum málum orðið of viðkvæmt?