móttaka barna á flótta.
Herra forseti. Af því að hv. þingmaður vísar aftur í hina þverpólitísku þingmannanefnd þá er kveðið á um hana í stjórnarsáttmálanum. Ég hef því engar áhyggjur af því að gengið verði fram hjá þeirri vinnu sem þar mun fara fram. Ég hef hins vegar áhyggjur af því að dregist hafi að tilnefna í nefndina. Mér skilst á þingflokksformanni Pírata að þau hafi verið að ganga frá sinni tilnefningu, sem er besta mál. Mér skilst hins vegar líka að enn sé beðið tilnefningar frá Miðflokknum. Ég vona að hún sé á leiðinni því að það er mikilvægt að þetta starf sé sett af stað sem fyrst.
Það lá fyrir í mínu fyrra svari við fyrirspurn hv. þingmanns að ég mun síðan sérstaklega fara yfir þessi mál með hæstv. dómsmálaráðherra því að það er mikilvægt að við hlustum eftir þeim athugasemdum sem fram koma í umsögn Rauða krossins. Eins og fram kom í fyrra svari mínu var athygli mín á þeirri umsögn ekki vakin fyrr en að lokinni staðfestingu reglugerðarinnar.