148. löggjafarþing — 43. fundur,  22. mars 2018.

nýr Landspítali.

[10:40]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Ég beini hér spurningu til hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra. Um liðna helgi kom saman landsfundur Sjálfstæðisflokksins og ályktaði með þeim hætti að ég sá ástæðu til að hrósa flokknum sérstaklega fyrir fína ályktun sem sneri að Landspítalanum sem hefur verið mjög umdeildur hér innan dyra. Sjálfstæðismenn ályktuðu m.a. svo og sögðu, með leyfi forseta:

„Lokið verði þeirri uppbyggingu á Landspítalalóð sem er komin á framkvæmdastig og tengist núverandi starfsemi. Farið verði tafarlaust í staðarvalsgreiningu fyrir framtíðaruppbyggingu sjúkrahúsþjónustu með öryggi og sterkari samgönguleiðum að leiðarljósi.“

Flestum sem ég þekki þótti svo augljóst að ástæða var til að fagna þessari stefnubreytingu, sérstaklega vitandi um þá umræðu sem hefur átt sér stað. Nú er sá sem hér stendur svo heppinn að eiga marga góða Sjálfstæðismenn fyrir vini. Margir þeirra voru fulltrúar á landsfundi en ekki einn einasti … (Gripið fram í: Hvaða landsfundi?) Það er nú það. [Hlátur í þingsal.] En það skildi ekki einn einasti þeirra ályktunina sem svo að verið væri að álykta um annað sjúkrahús og að klára ætti uppbyggingu við Hringbraut.

Það er tvennt sem mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra um. Er ríkisstjórnin einhuga í þessu máli? Með betri greinum um þetta mál sem ég hef séð lengi er grein hæstv. menntamálaráðherra Lilju Alfreðsdóttur undir yfirskriftinni „Er eitthvað að óttast við faglegt mat?“ Sú grein birtist í Morgunblaðinu. Ég hvet alþingismenn til að lesa hana því að hún er prýðileg samantekt á málinu og hvers vegna við ættum að fara í staðarvalsgreiningu.

Hitt sem ég vil spyrja hæstv. ráðherra um, sem hefur verið fjármála- eða forsætisráðherra til skiptis undanfarin ár: Hefur skilgreiningu á byggingarstigum verið breytt eitthvað fram hjá kerfinu? Ég þekki ekki nokkurn mann sem er tilbúinn að skilgreina það sem svo að (Forseti hringir.) meðferðarkjarni Landspítala – háskólasjúkrahúss sé kominn á framkvæmdastig.