148. löggjafarþing — 43. fundur,  22. mars 2018.

nýr Landspítali.

[10:42]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég saknaði hv. þingmanns á landsfundi Sjálfstæðisflokksins, hann var góður félagi okkar þar um árabil og trúnaðarmaður í flokknum, ár eftir ár. Eflaust hefur hann haft blendnar tilfinningar í brjósti þegar hann úr langri fjarlægð fylgdist með því þegar þar komu saman þúsund manns að álykta um hin ýmsu mál, m.a. um mál á heilbrigðissviðinu. Það er rétt sem hv. þingmaður segir að þar var m.a. komið inn á það sem snýr að Landspítalanum.

Nú er það svo að meðferðarkjarni Landspítalans er búinn á hönnunarstigi, það eru nokkrar vikur í að tekin verði skóflustunga að nýjum meðferðarkjarna (Gripið fram í.)og hann er þess vegna kominn á framkvæmdastig. Þegar menn tala um þær framkvæmdir sem eru nú í gangi eða eru komnar á framkvæmdastig, þá eru menn að tala um það sem búið er að hanna. Það er engin spurning að í tengslum við Landspítalann eru menn að tala um það að þar verði bráða- og háskólasjúkrahúsið á Íslandi en menn voru sömuleiðis sammála um það í Sjálfstæðisflokknum — og ég hvet hv. þingmann bara að koma aftur í flokkinn og sækja þar fundi ef hann hefur svona mikinn áhuga á því starfi sem þar fer fram — að það sé skynsamlegt að horfa til langrar framtíðar í uppbyggingu í sjúkrahúsþjónustu á Íslandi og að það sé orðið tímabært, jafnvel þótt við séum í miðjum klíðum við að ljúka uppbyggingu Landspítalans sem við höfum verið með fullfjármagnaða hér í ríkisfjármálaáætlunum undanfarinna ára, að huga að öðru sérhæfðara sjúkrahúsi sem muni styðja við það sem rís við Hringbraut.