148. löggjafarþing — 43. fundur,  22. mars 2018.

nýr Landspítali.

[10:44]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Ég fylgdist sérstaklega vel með þessari tilteknu ályktun landsfundar og sérstaklega vegna þess að formaður velferðarnefndar Sjálfstæðisflokksins er sá hinn sami og fer fyrir Spítalinn okkar, held ég að félagasamtökin heiti, og hefur mikinn áhuga á framgöngu spítalans við Hringbraut og uppbyggingu þar. En það er auðvitað þannig, nú kem ég aðeins mínum gömlu vinum og núverandi til varnar, hinum almenna fulltrúa á landsfundi, að það dettur ekki nokkrum manni þar í hug að það sé verið að álykta um nýjan spítala á nýjum stað sem eigi að vera í einhvers lags meginþjónustu og þurfi að hafa til hliðsjónar öryggi, sterkari samgönguleiðir og þar fram eftir götunum ef það á bara fyrst og fremst að skipta um mjaðmarliði og fjarlægja fæðingarbletti. Þetta er allt annars eðlis og það er ekki nokkur möguleiki að almennir landsfundarfulltrúar hafi skilið málið með þeim hætti sem eftir á virðist vera snúið út úr með.

Ég ítreka spurningu mína. Með vísan til hinnar góðu greinar sem hæstv. menntamálaráðherra skrifaði, (Forseti hringir.) „Er eitthvað að óttast við faglegt mat?“, er samhugur í ríkisstjórninni um þetta mál?