nýr Landspítali.
Virðulegi forseti. Ég held að hv. þingmaður ætti jafnvel að fara tafarlaust fram á fund í velferðarnefnd Sjálfstæðisflokksins og mæta þar og spyrja bara hverju það sæti að verið sé að álykta með óskýrum hætti. Hv. þingmaður ætti kannski bara að setja sig í samband við formann velferðarnefndar Sjálfstæðisflokksins, setjast niður með honum og spyrja hvernig rétt sé að túlka ályktun landsfundar Sjálfstæðisflokksins í velferðarnefnd. (Gripið fram í.)
Ég veit ekki hvaða erindi það á í sjálfu sér hingað inn í þingsal að þingmaður Miðflokksins kalli eftir skýringum á ályktun í velferðarnefnd Sjálfstæðisflokksins. Við ættum kannski að gera það að vana okkar að fara reglulega yfir ályktanir hinna ýmsu flokka. Það gæti verið uppbyggilegt. (Gripið fram í.) En í þessu máli erum við einfaldlega að tala um að það mun rísa spítali við Hringbraut, Landspítalinn. Hann verður bráða- og háskólasjúkrahúsið. Sjálfstæðisflokkurinn er þeirrar skoðunar að það sé orðið tímabært að huga að frekari uppbyggingu sjúkrahúsþjónustu, m.a. vegna þeirra atriða sem talað er um í viðkomandi ályktun. (Gripið fram í.)