148. löggjafarþing — 43. fundur,  22. mars 2018.

tollgæslumál.

[11:43]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Ég þakka málshefjanda fyrir þessa þörfu umræðu og hæstv. ráðherra fyrir svörin. Það er alveg ljóst að ferðamönnum hefur fjölgað gríðarlega á liðnum árum en 20% niðurskurður var hjá tollgæslunni eftir hrun. Fjölgun ferðamanna hefur hins vegar verið mörg hundruð prósent og tollgæslunni því miður ekki bættur niðurskurðurinn sem áður var eða veitt nauðsynlegt rekstrarfé.

Álagið á Keflavíkurflugvelli er þannig meira en góðu hófi gegnir vegna fjölgunar ferðamanna en einnig vegna þess að innflutningur hefur aukist gríðarlega að undanförnu. Tollgæsla hefur vart undan, sérstaklega varðandi póst og hraðsendingar. Þýðir þetta vissulega mikið tekjutap fyrir ríkið. Já, tekjutap.

Varðandi skipulega glæpastarfsemi hljótum við að vera sammála um að við innstreymi glæpagengja verði að bregðast af festu. Til þess að svo verði þarf landamæravarsla að vera virk, landamæravarsla sem þá getur haft betri yfirsýn yfir þá einstaklinga sem koma hingað á grundvelli EES-samningsins og Schengen sem og þann varning sem hóparnir bera með sér.

Vegna áðurnefnds niðurskurðar höfum við því miður einnig vanrækt þetta stórlega sem og aðra innviði. Því erum við í þeim ógöngum sem við nú erum í. Tæknibúnaður og tölvubúnaður tollgæslunnar er að sama skapi þess eðlis að við verðum þar líka af miklu fé. Einhverra hluta vegna hefur innheimtuþátturinn þannig verið stórlega vanræktur, bæði hjá tolli og skatti, og er, að því er virðist, með fullri vitneskju og vilja stjórnvalda.

Ástæðan hefur verið sögð að tollar og vörugjöld hafi að miklu leyti verið aflögð en alls ekki alveg og því er morgunljóst að í þessu, eins og ætla má með skatteftirlit, er ríkissjóður ekki bara að verða af milljónum heldur hundruðum milljóna. Mögulega milljörðum. Fyrir utan öryggisþáttinn.

Herra forseti. Þetta er skýr pólitísk ákvörðun og veltir maður fyrir sér hverjum það gagnist að eftirlit með landamærum, tollum og sköttum sé vanrækt.