tollgæslumál.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að þakka málshefjanda fyrir þessa þörfu umræðu. Það blasir við að umhverfi og starf tollgæslunnar hefur gerbreyst á stuttum tíma, bæði vegna stóraukins inn- og útflutnings og ferðalaga mannfólksins, ekki bara erlendra ferðamanna heldur líka landsmanna sjálfra. Hef ég heimildir fyrir því að menn séu hreinlega að drukkna í tollpósti. Álag er misjafnt eftir landsvæðum og árstíma. Aukið flug til Akureyrar kallar t.d. á meira eftirlit. Það segir sig sjálft. En menn hafa lagað sig að breyttum aðstæðum og víða tekist vel upp.
Á Austurlandi veit ég að góð samvinna lögreglu og tollgæslu hefur skilað miklum árangri. Þar er vel þjálfað fólk sem vinnur við ferjuafgreiðslu, fólk með áratugareynslu. Má benda á að á Seyðisfirði hafa menn nýlega náð að stöðva stórar sendingar af fíkniefnum. Þar hafa líklega komið upp stærstu fíkniefnamálin. Þrátt fyrir að eitthvað vanti upp á tækjabúnað, sem vissulega mætti vera betri, hefur mannafli hjá tolli og lögreglu, í samstarfi við Færeyinga og Dani, staðið vel að verki. Þar telja menn sig ná vel utan um verkefnin en þess má geta að verið er að huga að endurnýjun á búnaði, líkt og hæstv. ráðherra vék hér að áðan. Það er vel.
Það sem ég vil þó vekja athygli á er vöntun á fíkniefnahundum. Þeir hafa sannað sig sem besta verkfærið í leit að fíkniefnum. Í upphafi kostar hver hundur töluvert mikið og ekki er einfalt að halda þessar skepnur. Sá sem tekur það að sér þarf að gangast undir mikla ábyrgð og er í raun á vakt allan sólarhringinn. Starfið fléttast inn í allt hans líf. En sem betur fer er til fólk sem vill sinna því hlutverki. Hver hundur er dýr en ég held að hann sé hverrar krónu virði.
Vissulega má gera betur í þessum málaflokki og alltaf getum við notað fjármuni og við þurfum að gera það. En höldum því líka til haga að um allt land er unnið gott starf.