148. löggjafarþing — 43. fundur,  22. mars 2018.

tollgæslumál.

[12:04]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg):

Herra forseti. Ég vil í upphafi máls míns þakka hv. þm. Þorsteini Sæmundssyni fyrir að vekja máls á þessu umræðuefni. Eins og þingmönnum er kunnugt eru tollarar og innheimtumenn ævagömul starfsstétt og fengu jafnvel pláss í elstu textum, bæði íslenskum og erlendum. Hlutverk þeirra hins vegar í nútímanum er fjölþætt og hefur tekið töluverðum breytingum. Sá þáttur sem snýr að þjónustu við flugvélar og skip og ferðamenn hefur verið að vaxa jafnt og þétt, en að sama skapi kannski sjaldnar sem þarf á að halda tollafgreiðslu til að mynda fyrir fiskiskip sem sigla með afla og þess háttar.

Ég vil leggja áherslu á þjónustuhlutverk tollgæslunnar því að það er gríðarlega mikilvægt og verður sífellt mikilvægara. Auðvitað er eftirlitið líka hlutur af þessu, en eftirlitið er í sjálfu sér þjónusta.

Tollafgreiðsla í héraði, jafnvel með föstum starfsstöðvum, getur verið mjög mikilvægur þáttur í að efla ferðaþjónustu og auðvelda ferðamönnum og þjónustuaðilum ferðamanna móttöku þeirra í heimahéraði. Það getur skipt miklu máli í sambandi við eflingu ferðaþjónustunnar og með þessu myndum við jafna aðstöðu landshlutanna.

Hv. þm. Þorsteinn Sæmundsson kom inn á það áðan að hann væri til í að veðja við hæstv. ráðherra eins og einum poka af súkkulaðirúsínum um það hvort væri ekki hægt að bæta verulega í þarna og hafa af því verulegan hag. Ég ákvað þess vegna að útvega mér einn slíkan poka sem ég mun færa þingmanninum í lok ræðu minnar til varðveislu og hann og hæstv. ráðherra geta þá deilt honum með sér þegar og ef af efndum verður.