móttaka skemmtiferðaskipa.
Herra forseti. Ég þakka málshefjanda fyrir að taka móttöku skemmtiferðaskipa til umræðu í þinginu, þakka líka hæstv. ráðherra fyrir innkomu hans hér.
Í aðdraganda síðustu kosninga lagði Miðflokkurinn fram stefnu sem kallast Ísland allt, þar sem gengið er út frá að litið sé til landsins alls til frekari stefnumótunar í öllum málaflokkum. Það á einnig við í áætlunum vegna komu skemmtiferðaskipa. Í nýlegu erindi hafnarstjóra Hafnasamlags Norðurlands sagði Pétur Ólafsson að hann vildi hafa þá sýn að dreifa álagi um landið og reynt væri að markaðssetja landið sem eina heild og gera þannig úr garði að við gætum tekið á móti fleiri smærri skipum. Þau komast í fleiri hafnir og fleiri njóta góðs af og huga þarf að landinu öllu. Þar sem hafnasamlögin eru oftast nær með bæði stórar og minni hafnir myndi þetta nýtast til að leggjast í uppbyggingu smærri hafna.
Það eru nokkrar áskoranir. Það er dreifikerfið, við þurfum að fá t.d. aðkomu ríkisins til að geta tekið á móti landtengingum, okkur vantar fjármagn og á móti má líka segja að skipin eða þeir sem hanna þessi skip eru að huga að öðruvísi orkugjöfum. Ég held að það séu rúmlega 90 skip núna á teikniborðinu þar sem sérstaklega er hugað að orkumálum með umhverfisvernd í huga. Ég sé hér á mínu blaði, sem er mjög áhugavert, að það verða til 300 heilsársstörf um allt land. Það þýðir að landsbyggðin nýtur góðs af því og það er mikilvægast.