móttaka skemmtiferðaskipa.
Virðulegi forseti. Ég þakka frummælanda fyrir hennar góðu yfirferð á þessu þarfa umræðuefni sem eru skemmtiferðaskipin sem sækja okkur heim.
Staðreyndin er sú að nú eigum við von á um 100.000 ferðamönnum. Það er auðlind sem felst í því, virðulegi forseti, að svo margir skuli kjósa að sækja landið okkar heim á skemmtiferðaskipunum. Þau verða á bilinu 90–95 á þessu ári ef að líkum lætur, samanber skýrslu sem kom út í fyrra.
Staðreyndin er sú að gerð var könnun á því í fyrrasumar hversu mikil mengun fælist í því nákvæmlega að skipin lægju hér við bryggju, þá er verið að tala um í Reykjavíkurhöfn. Talað var um að á einum sólarhring mengaði slíkt skip jafn mikið og 10.000 bílar. Þannig að meginreglan virðist vera sú, og það sem er verið að gera úti í heimi og þar sem verið er að hugsa um umhverfisvernd, er að koma taug í land til þess að þessi skip geti nýtt sér raforkuna. Það er nákvæmlega það sem við þurfum að gera hér. Um leið og við tökum fagnandi utan um þann iðnað sem ferðamannaiðnaðurinn okkar er og í þessu formi, farþega með skemmtiferðaskipum, og um leið og við reynum að gera eins og við getum til þess að dreifa þeim út um alla landsbyggðina, þá eigum við ekki að hlusta á að það sé of dýrt að koma rafmagni til skipanna með því að vera með taug í land, bara alls ekki.
Virðulegi forseti. Ég segi: Við skulum reyna að gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að vera glöð yfir því að hafa skemmtiferðaskip hér í höfnum en ekki vera sorgmædd yfir því að hvert þeirra mengi á við 10.000 bíla á einum sólarhring.