móttaka skemmtiferðaskipa.
Virðulegi forseti. Síðasta sumar kom til Akraness skemmtiferðaskipið Le Boreal og hlaut góðar móttökur Faxaflóahafna og íbúa Akraness. Þetta var eina skemmtiferðaskipið sem lagði að bryggju í mínum heimabæ það sumarið og það er óskandi að þau verði fleiri því að hafnaraðstaða á Akranesi er góð og bærinn kjörinn til að rölta um.
Með því að fá fleiri skemmtiferðaskip til Akraness er einnig hægt að beina ferðamannastraumnum upp í Borgarfjörð og nærsveitir með sína náttúrufegurð, sögustaði og fallegu býli. En undirbúningur og uppbygging fyrir þessa tegund ferðaþjónustu gerist ekki á einni nóttu og eflaust er hræðsla í fólki að leggja í kostnað við hafnir á smærri stöðum landsins, svo sem rafmagn eða annað ef ekki er vitað hvort skemmtiferðaskipin verði viðloðandi á þeim litlu stöðum og fastur liður í bæjarlífi kaupstaða landsins. Þessi mál verða náttúrlega að vera í lagi, við fáum skipin ekki til okkar ef slík mál eru ekki í lagi.
Þá komum við kannski að hlutverki litla mannsins. Við þurfum á eldhugum að halda sem hafa óbilandi trú á sínu bæjarfélagi og eru tilbúnir til að finna tækifæri sem þar liggja. Þá meina ég uppbyggingu á litlum stöðum, finnum það sem er aðlaðandi í hverju samfélagi og gerum eitthvað úr því. Og þá langar mig að koma inn á Akranes og þann mann sem hefur átt stóran þátt í uppbyggingu á Akranesi. Við erum með einn slíkan mann sem var talinn galinn að ætla að draga fólk að gamla vitanum á Breiðinni, en það svæði hefur tekið miklum stakkaskiptum og er bænum til sóma, þökk sé þeim manni. Þessi staður dregur að sér ferðamenn og heimafólk allan ársins hring og í gær komu fimm 60 manna rútur til að skoða vitann.
Það er óskandi að fólk um allt land leggi sitt af mörkum fyrir bæjarfélög sín og nærumhverfi, bæði fyrir innlendan og erlendan túrisma og hlustað sé á þá einstaklinga og við þá stutt svo við getum fengið fleiri skemmtiferðaskip í þessi litlu bæjarfélög.