móttaka skemmtiferðaskipa.
Virðulegur forseti. Við erum að tala um skemmtiferðaskip. Í skýrslu Rannsóknamiðstöðvar ferðamála frá 2017 segir orðrétt, með leyfi forseta:
„Fulltrúar sveitarfélaga virðast lítið koma að ákvarðanatökum um markaðssetningu eða framkvæmd móttöku og þjónustu við skemmtiferðaskip í héraði.“
Og einnig:
„Eiginlegar ákvarðanir um komur, dvalartíma og fyrirkomulag heimsókna eru á hendi skipafélaga.“
Mínar mestu áhyggjur í sambandi við skemmtiferðaskipin snúa að því hvað við ætlum að gera ef slys verður á skipi með þrjú þúsund manns innan borðs á leið inn Ísafjarðardjúp.
Við vitum að það varð svakalegt slys á Ítalíu á sínum tíma þegar skipstjóri ákvað að fara dálítinn aukarúnt og skipinu hvolfdi. Ég spyr: Hvernig stöndum við á Íslandi ef eitthvað svoleiðis kemur upp? Ég veit ekki hvað við ætlum að gera.
Síðan er annað, það er mengunin frá þessum skipum. Ég heyrði einhvern tímann umræðu um að það væri tæknilega of flókið og eiginlega ekki hægt að tengja þessi skip við rafmagn í höfn. Ég var nýbúinn að heyra umræðu um annað mál og ég hélt að það væri bara einhver brandari. Þá var verið að tala um að tengja rafstreng við Bretland og það átti ekki að vera neitt vandamál. En að tengja skip við rafmagn í höfn var alveg svakalegt vandamál.
Ég held að við þurfum bara að finna lausnir. Það eina sem er skrýtið við þetta er að umferð þessara litlu skipa skuli ekki vera stýrt betur vegna þess að þau virðast skila sér betur. Þau komast í fleiri hafnir. Aftur á móti fylla farþegarnir úr stóru skipunum alla ferðamannastaði á sumrin og valda gífurlegum vandræðum á Gullfossi og Geysi.