móttaka skemmtiferðaskipa.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):
Herra forseti. Ég ítreka þakkir mínar til hv. þingmanns fyrir þessa sérstöku umræðu og þakka gagnlegar ábendingar frá hv. þingmönnum sem tekið hafa til máls hér í dag. Þegar kallað er eftir regluverki um heimsóknir skemmtiferðaskipa og þjónustu vegna þeirra þarf, eins og hér hefur komið fram, að huga að ýmsum þáttum. Þá kemur enn og aftur berlega í ljós hið fjölþætta eðli ferðaþjónustunnar, angar hennar og regluverk teygja sig nefnilega um allt stjórnkerfið. Og á köflum er óljóst hvar frumkvæði að aðgerðum liggur. Það þekkjum við. Þetta kemur fram aftur og aftur. Það er eðli ferðaþjónustunnar og verður áfram.
Regluverk um skemmtiferðaskip er að mörgu leyti mál sveitarfélaga þar sem tekjur af skipunum koma í gegnum hafnirnar og hafnasamlög og renna í sjóði. Þar þarf að ná samstarfi við sveitarfélögin og þá þarf umhverfis- og auðlindaráðuneytið og Umhverfisstofnun að koma að málum vegna umhverfismála. Ég vildi koma því að að hjá Umhverfisstofnun er langt komin vinna við fyrstu verndar- og stjórnunaráætlun í þessum efnum, t.d. varðandi landtöku á Hornströndum. Það er mjög mikilvægt.
Ef óskir eru um inngrip t.d. varðandi fjöldatakmarkanir er það annað mál sem við þurfum að ræða sérstaklega. Ég myndi telja rétt að slíkar beiðnir kæmu þá frá sveitarfélögunum sjálfum. Ég tel að sveitarfélögin sjálf viti best og ættu því best að geta stýrt því hvernig best færi á því án miðstýringar ráðherra ferðamála nema þess sé sérstaklega óskað. Ég get til að mynda upplýst um að starfshópur á vegum samtakanna Cruise Iceland er þessa dagana að skoða takmarkanir á fjölda farþega og skipa. Ég fagna þessu frumkvæði þeirra sem að að því standa og hafa mestu hagsmuni af því. Svo tökum við það inn í stóru myndina um almenn umhverfisleg, samfélagsleg og efnahagsleg þolmörk ferðaþjónustu þannig að við getum stuðlað að því að atvinnugreinin sé sjálfbær.