Frestun á skriflegum svörum.
Borist hafa fjögur bréf frá dómsmálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 483, um störf þingmanna á vegum framkvæmdarvaldsins, frá Birni Leví Gunnarssyni, á þskj. 428, um starfsmenn ráðuneytisins og stofnana á málefnasviði ráðherra, frá Þorsteini Sæmundssyni, á þskj. 398, um ráðningar ráðherrabílstjóra, frá Birni Leví Gunnarssyni, og á þskj. 380, um ráðherrabíla og bílstjóra, frá Birni Leví Gunnarssyni.
Borist hafa tvö bréf frá utanríkisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 384, um ráðherrabíla og bílstjóra, frá Birni Leví Gunnarssyni og á þskj. 424, um starfsmenn ráðuneytisins og stofnana á málefnasviði ráðherra, frá Þorsteini Sæmundssyni.
Borist hafa þrjú bréf frá heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 339, um fjárveitingar til Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja, fjölda ársverka og þróun launakostnaðar, frá Birgi Þórarinssyni, á þskj. 430, um starfsmenn ráðuneytisins og stofnana á málefnasviði ráðherra, frá Þorsteini Sæmundssyni og á þskj. 379, um ráðherrabíla og bílstjóra, frá Birni Leví Gunnarssyni.
Þá hefur borist bréf frá félags- og jafnréttismálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 429, um starfsmenn stofnana á málefnasviði ráðherra, frá Þorsteini Sæmundssyni.
Loks hefur borist bréf frá umhverfis- og auðlindaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 386, um ráðherrabíla og bílstjóra, frá Birni Leví Gunnarssyni.