148. löggjafarþing — 43. fundur,  22. mars 2018.

kosningar til sveitarstjórna.

40. mál
[13:58]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Málið sem hér liggur fyrir er lagt fram af þingmönnum ýmissa flokka og er í eðli sínu ekki mjög flokkspólitískt. Það er hins vegar ekki samkomulagsmál og birtist það m.a. í því að frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd koma allnokkur nefndarálit og breytingartillögur. Persónulega er ég þeirrar skoðunar að færa megi rök fyrir hvort sem er 18 ára eða 16 ára aldurstakmarki við sveitarstjórnarkosningar eða aðrar kosningar. Ég hefði þó talið að eðlilegt væri að horfa til víðtækari samræmingar á réttindum og skyldum ungmenna en að taka þetta út úr og lækka þar kosningaaldurinn tvö ár niður fyrir það sem sjálfræðisaldur er í landinu, fjárræði og annað sem því fylgir. Þannig að ég get ekki stutt þetta mál. Ég vildi hins vegar hér við 2. umr. minna á að í umræðunni sjálfri komu fram óskir um að nefndin tæki málið aftur til umfjöllunar (Forseti hringir.) milli 2. og 3. umr. Ég ítreka að svo verði.