kosningar til sveitarstjórna.
Virðulegi forseti. Eins og fram kom í máli hv. þingmanns hér á undan er þetta ekki flokkspólitískt mál heldur fer það þvert á flokka og fyrir liggja fjögur nefndarálit. Ég styð frumvarpið efnislega en tel að allt of skammur tími sé til kosninga og legg því fram breytingartillögu þess efnis að lögin taki ekki gildi fyrr en um næstu áramót. Sú afstaða var ítrekuð á fundi nefndarinnar, bæði frá dómsmálaráðuneyti og Sambandi íslenskra sveitarfélaga nú í hádeginu, að grundvallarbreytingar á kosningalöggjöfinni, eins og hér er lagt til að verði gerðar, eigi ekki að fara fram á síðasta ári fyrir kosningar. Þar er m.a. vísað til leiðbeininga (Forseti hringir.) Evrópuráðsins og talað um friðarskyldu í aðdraganda kosninga.