148. löggjafarþing — 43. fundur,  22. mars 2018.

kosningar til sveitarstjórna.

40. mál
[14:03]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það ætti ekki að koma á óvart að ég muni styðja framgang þessa máls. Fyrir því eru mörg góð og gild rök sem ég treysti að hv. þingmenn hafi lesið með sjálfu frumvarpinu og í nefndaráliti meiri hlutans. Þau sem finna agnúa á þessu máli og telja að ekki sé hægt að hrinda því í framkvæmd fyrir þessar kosningar eða áður en við förum í einhverja heildarendurskoðun á eiginlega öllum sköpuðum hlutum, munu að sjálfsögðu alltaf finna sér eitthvað og segja að við getum ekki gert þetta núna. Hins vegar hefur komið fram að það er ekkert því til fyrirstöðu að framkvæmd kosninganna verði samkvæmt þessari breytingu núna. Við teljum ungmenni 16 til 18 ára nógu gömul til að við getum tekið af þeim skatt og eytt þeim peningum. Við teljum þau sakhæf. Það er því tvískinnungur að mínu mati að við treystum þeim samt ekki til að greiða atkvæði í kosningum.