kosningar til sveitarstjórna.
Herra forseti. Það er gott að heyra öll þessi góðu sjónarmið sem hér koma fram. Meðal annars er spurt hvers vegna að breyta eingöngu kosningarréttinum þegar um er að ræða sveitarstjórnarkosningar og að það sé einhver fásinna. En það tíðkast, það hefur gerst í nágrannalöndum okkar að einmitt þessum kosningarrétti hafi verið breytt vegna þess að um er að ræða nærumhverfið, um er að ræða nærsamfélag þessara ungmenna sem á mögulega kosningarrétt.
Þeir aðilar sem hafa helst gagnrýnt þessar breytingar núna og tala um að þetta sé of skammur tími byggja gagnrýni sína á því að ekki gefist nægur tími til kynningar fyrir þá aðila sem fá kosningarrétt nú í vor. Þá ber að geta þess að fyrir nefndinni kom algjörlega skýrt fram hjá dómsmálaráðuneyti og menntamálaráðuneyti að það á engin kynning sér stað í dag fyrir það unga fólk sem fær kosningarrétt á þessu ári, (Forseti hringir.) fyrir þá sem eru 18 ára. Það er engin kynning sem á sér stað heldur fyrir þá erlendu (Forseti hringir.) borgara sem eru að fá kosningarrétt. Eina kynningin fer fram á vegum LUF, Landssambands ungmennafélaga, sem er á fullu í kynningarmálum og mun fara í enn frekari kynningarmál í vor.