kosningar til sveitarstjórna.
Virðulegi forseti. Svo það komi skýrt fram er ég efnislega sammála þessari breytingu og frumvarpinu. Fyrir fimm vikum komu fulltrúar dómsmálaráðuneytisins á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og á þeim tíma sáu þeir enga meinbugi á að geta framkvæmt þetta á þeim tíma sem var þá til kosninga. Í dag horfir þetta öðruvísi við. Dómsmálaráðuneytið leggur til að frumvarpið taki ekki gildi nú í vor heldur síðar vegna annmarka sem þeir sjá t.d. á því að meiri hætta sé á mistökum við framkvæmd kosninganna. Þeir segja þetta í dag. Þeir tala um kynningu o.s.frv. Ég tel í dag að það sé auðvitað hætta á mistökum ef þetta verður gert núna, eftir tvo mánuði, og bendi á nokkur atriði. Eins og t.d. það að utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst eftir rúma viku. (Gripið fram í.) Einnig (Forseti hringir.) munu menn ekki verða ánægðir með það ef þau mistök kæmu upp í kosningunum að þessi aldurshópur, 16 og 17 ára, mætir ekki á kjörstað nema í litlum mæli. Það yrðu mistök á þessari framkvæmd.