kosningar til sveitarstjórna.
Virðulegi forseti. Ég er sammála þeirri breytingu sem hér á að gera á kosningalögum og held að þingmenn viti að það að vaxa úr grasi er eitt samfellt þroskaferli, það gerist í mörgum skrefum og það er löng hefð fyrir því í íslensku samfélagi að við tökum inn alls konar réttindi eftir því sem menn hafa þroska og aldur til og það er ekki allt á sama aldrinum. Ég held jafnframt að fáir séu betur til þess fallnir í íslensku samfélagi en einmitt ungt fólk að tileinka sér hluti hratt og vel. Sá tími sem við erum að tala um er kappnógur til að fólk geti kynnt sér út á hvað það gengur að kjósa og taka þá ábyrgð sem því fylgir. Ég vil hins vegar bæta því við, hvað varðar kjörgengisþáttinn, að ég hvet hv. þingmenn og þingheim allan til að skoða það fyrir næstu kosningar hvort ekki mætti bæta þeim þætti réttinda inn í kosningalöggjöfina.