kosningar til sveitarstjórna.
Hæstv. forseti. Ég er í hjarta mínu sammála því að kosningarréttur unglinga sé færður niður í 16 ár. En í ljósi þess hef ég skoðað þetta mál ansi vel og rætt við fólk og viðrað hugmyndir og ætla þar af leiðandi, hv. þm. Jón Þór Ólafsson, að draga lappirnar í þessu máli. (JÞÓ: Það eru undantekningar.) [Hlátur í þingsal.] Þú getur alveg merkt við mig. Ég held að það sé of skammur fyrirvari, (Gripið fram í: Nú?) ekki síst þar sem Samtök íslenskra sveitarfélaga hafa fjallað um það í nefndinni að þau telji þetta of skamman fyrirvara. Ég held að fyrirvarinn sé of stuttur.