kosningar til sveitarstjórna.
Virðulegi forseti. Við erum að ræða um mjög mikilvægt mál, um að við viljum efla lýðræðisþátttöku ungs fólks á Íslandi. Ég mun styðja þetta mál þrátt fyrir að skammur tími sé til stefnu. Við menntamálayfirvöld munum vinna að því að auka fræðslu er varðar þennan þátt náum við að fá þetta samþykkt í dag. Ég held líka að bara við að gera þessa breytingu muni talsverð athygli beinast að málinu og það muni hvetja ungt fólk áfram til að taka upplýsta ákvörðun. Ég treysti ungu fólki fyllilega til að taka upplýsta ákvörðun þegar það fer að kjósa. Ég tel að þetta sé gott mál og mun styðja það og vinna af fullum heilindum í að auka fræðslu hvað þetta varðar.