kosningar til sveitarstjórna.
Virðulegi forseti. Ég verð að segja að þetta er mest spennandi atkvæðagreiðsla sem ég hef tekið þátt í á Alþingi. Ég hlakka til að sjá framvinduna og greina hana eftir á. Mig langar til að fagna öllum nefndarálitum sem bárust um þetta vegna þess að það virðist vera alger samhugur um að lækka aldurinn niður í 16 ára. Fólk er auðvitað með misjafnar skoðanir á því hvenær og hvort taka eigi eitthvað annað með eða því um líkt. Málefnalegur ágreiningur að mestu leyti eftir því sem ég fæ best séð.
Svo það sé sagt er ég alveg hlynntur því að skoða það að lækka fleiri aldursmörk ef fólk vill það endilega. En mér finnst hins vegar líka allt í lagi að lækka einn aldur án þess að lækka annan. Ég ætla að nefna hérna: Tvítug megum við kaupa áfengi, 18 ára verðum við sjálfráða og fjárráða og fáum kosningarrétt, 17 ára fáum við bílpróf, ef við viljum, 16 ára byrjum við að borga skatta, 15 ára verðum við sakhæf og 14 ára komumst við í svokallaða fullorðinna manna tölu, sem mér hefur alltaf þótt mjög kaldhæðnislegt hugtak á þessum aldri þar sem náttúrlega má ekki neitt samt sem áður. Eins og við munum öll.
Ég sé ekkert því til fyrirstöðu að samþykkja þetta hér. Ég hef heyrt rökin gegn því að gera þetta, heyrt rökin fyrir því að fresta því. (Forseti hringir.) Mér finnst rökin fyrir því að fresta því ekki sterk, mér finnst rökin fyrir því að gera þetta núna alveg duga. Gerum þetta bara.