148. löggjafarþing — 43. fundur,  22. mars 2018.

kosningar til sveitarstjórna.

40. mál
[14:31]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Hér hefur gjarnan verið vísað til þess að talsmenn barna séu á Alþingi og hér er ég komin til að tala sem slíkur. Það er vísað í barnasáttmála og vísað í barnaverndarlög, vísað í hvaðeina nema það sem er barninu hugsanlega fyrir bestu. Ég ætla að leyfa mér að lesa upp lítið erindi sem ég fékk frá sálfræðingi sem hefur beitt sér sérstaklega fyrir velferð barna, bæði gegn kynferðislegu ofbeldi og einelti gagnvart börnum. Fyrirsögnin er einfaldlega: „Látum unglingana í friði.“

„Um 16 ára aldurinn standa flestir unglingar á tímamótum. Um þetta leyti eru þeir að ljúka grunnskóla og eru að taka ákvörðun um hvert þeir vilja stefna í lífinu. Eins og allir vita sem umgangast börn og unglinga þá munar mikið um hvert ár í þroska sérstaklega á þessu aldursskeiði.

Það sem skiptir höfuðmáli er að ungmenni fái [...] hvatningu og örvun til að styrkja sjálfsmynd sína, næði til að móta persónulegan lífstíl og að finna sig sem hluti af ákveðinni heild.“

Þau þurfa að fá svigrúm, þau þurfa að fá frið til þess að þroska eigið sjálf og mynda sér skoðanir án ytra áreitis og þrýstings.

„Þetta er kjarni þess að vera barn og unglingur. Á þessum árum er vinahópurinn jafnan í miklum forgangi. Verkefnin eru því næg þótt 16–18 ára ungmenni séu ekki líka krafin um pólitíska afstöðu og trúnað við stjórnmálaafl. Okkur ber skylda til að vernda börn og ungmenni gegn hvers kyns ágengni, áróðri eða þrýstingi til að taka afstöðu í hagsmunapoti ólíkra samfélagsafla.“

Því segi ég: Látið börnin í friði og lofið þeim að verða 18 ára því að þau geta sjálfsagt kosið, með þessum langa lífaldri sem við höfum nú, næstu 70 árin áreitislaus. [Hlátur í þingsal.]